3 – Æ, mamma, mig vantar ekki nýja skó! – Nýja skó? Hver var að tala um nýja skó? Ég ætlaði bara að segja þér að það koma gestir í mat til okkar í kvöld! – Hvaða gestir? – Þú þekkir annan þeirra. Það er hann Maggi. Já, ég þekki Magga. Hann hefur verið að bjóða mömmu út og heimsækja hana í marga mánuði. Hann hefur oft borðað með okkur. Varla eru það miklar fréttir að hann komi í mat. – Hann ætlar að koma með dóttur sína með sér. Hún heitir Véný og er jafngömul þér. Verður það ekki gaman?
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=