Ég fer inn til mín og skoða símann minn aftur. Þar eru engin skilaboð. Ég opna tölvuna og fer inn á Facebook. Jú, þarna er merki um skilaboð. Fer í bókasafnið. Verð sein. Allt í lagi að þau svitni aðeins. Ég flýti mér að loka tölvunni og er næstum rokinn af stað til að segja mömmu og Magga frá skilaboðunum. En þá fer ég að hugsa. Ef ég segi þeim þetta þá komast þau að öllu. Þau fá að vita að við tölum saman og að við höfum verið að gabba þau. Nei. Ég get ekki gert það. Ekki strax að minnsta kosti. 40
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=