Ég þoli ekki bleikt

– Vonandi hefur hún ekki farið upp í bíl með ókunnugum, hvíslar mamma með tárin í augunum. – Auðvitað ekki! segi ég. Véný er enginn bjáni! Mamma og Maggi horfa á mig hissa en svo fara þau aftur að tala saman um að hafa samband við lögregluna. Hvað á ég að gera? Ef ég segi þeim að Véný sé bara að plata þá er áætlunin okkar farin út um þúfur. Þá verða þau reið yfir að við höfum verið að gabba þau allan tímann. En ég get ekki horft á mömmu og Magga svona áhyggjufull og hrædd. Ég verð að gera eitthvað. 38

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=