Mamma bíður við símann. Hún drekkur marga bolla af kaffi og henni er mjög órótt. Loksins hringir síminn. Véný er ekki hjá neinni vinkonu og ekki hjá afa sínum og ömmu. Ég sé tár blika í augunum á mömmu. Maggi kemur heim. Hann er búinn að keyra um allt hverfið, alla leiðina sem Véný er vön að ganga úr skólanum og heim til okkar. Hann er fölur og samanbitinn og talar um að gera lögreglunni viðvart. 36
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=