Ég þoli ekki bleikt

Mamma er óróleg. Hún hringir í símann hennar Vénýjar en enginn svarar. Svo hringir hún í Magga og hún hringir meira að segja í mömmu hennar Vénýjar þótt hún þekki hana ekkert. Ég heyri á röddinni að mamma er mjög áhyggjufull. – Já, ég veit að henni hefur ekki liðið vel að undanförnu, segir mamma. Ég er hrædd um að hún sé ósátt við að búa hjá okkur. Geturðu kannski hringt í vinkonur hennar? Kannski hefur hún farið heim með einhverri þeirra. 35

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=