Ég þoli ekki bleikt

MYRKUR MÁNUDAGUR Það er mánudagur og Véný á að koma til okkar þegar hún er búin í skólanum. Hún á að vera hér þessa viku. Við erum búin að ákveða að rífast rosalega mikið. Ég kvíði svolítið fyrir. Ég er ekki eins duglegur að leika og Véný. En hún segir að ég geti skellt hurðum og svoleiðis. Hún ætlar að sjá um öskrin. Ég er búinn í skólanum á undan Vénýju á mánudögum. Ég stend við gluggann og horfi út. Það er dimmt og leiðinlegt veður. Allur snjórinn er farinn og það eru risastórir pollar alls staðar. Nú ætti Véný að vera komin. Klukkan er orðin hálf þrjú. En það bólar ekkert á henni enn þá. 32

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=