Ég sé með teikningu

74 MENNTAMÁLASTOFNUN | 7336 KAFLI 3 BIRTA STUTT LÝSING Á VIÐFANGSEFNI KAFLANS Í þessum kafla er áhersla lögð á að nemendur auki þekkingu sína og skilning á hvernig ljós fellur á fyrirmyndir. Enn fremur að nemendur öðlist leikni í margvíslegum aðferðum til að greina lögun og tóna birtu- og skuggaflata fyrirmynda og yfirfæra þá á teikniflöt. Nemendur skoða verk og vinnuaðferðir nokkurra myndlistarmanna og nýta sem kveikju ásamt fleiru og gera síðan eigin tilraunir í efni. Þeir ígrunda verk sín og annarra í virku sam- tali við kennara og aðra nemendur og beita í því samtali hugtökum sem tengjast aðferðum kaflans. HÆFNIVIÐMIÐ Á bls. 164 má sjá hvaða hæfniviðmið heyra undir hvert og eitt verkefni. MARKMIÐ KAFLANS ERU AÐ AUKA • þekkingu og skilning nemenda á því hvernig ljós fellur á fyrirmyndir • þekkingu og skilning nemenda á marg- víslegum aðferðum til að greina og yfir- færa á teikniflöt lögun og tóna birtu- og skuggaflata fyrirmynda og leikni í að beita þeim • þekkingu og skilning nemenda á nokkrum verkum myndlistarmanna og aðferðum sem þeir hafa beitt • leikni nemenda í að teikna út frá kveikju og gera tilraunir • leikni nemenda í að fjalla um eigin verk og annarra í virku samtali við aðra nemendur • leikni nemenda í að hlusta, tjá skoðanir sínar, koma með styðjandi ábendingar og færa rök fyrir máli sínu af sanngirni og virðingu • þekkingu og skilning nemenda á hug- tökum sem tengjast verkefnum kaflans og leikni í að nota þau í samræðum Þrívíð grunnform : Kúla, kassi, síval- ingur og keila. Birtuflötur (hlið) : Þau svæði á fyrir- mynd sem ljós fellur á. Skuggaflötur (hlið) : Þau svæði á fyrirmynd sem ljós nær ekki til. Kastskuggi : Skugginn sem varpast af hlut á það sem hann stendur á og/ eða við. Mjúk skil : Þegar ljós fellur á boga- dregið yfirborð, eins og á kúlu, skap- ast mjúk skil milli birtu og skugga því yfirborðið snýr smátt og smátt lengra í átt frá ljósinu. MEGINHUGTOK KAFLANS ..

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=