Ég og samfélagið

78 Lagid um pad sem er bannad Það má ekki pissa bakvið hurð og ekki henda grjóti oní skurð Ekki fara í bæinn og kaupa popp og tyggjó, ekki nota skrúfjárn fyrir sleikjó Það má ekki vaða út í sjó og ekki fylla húfuna af snjó Ekki tína blómin, sem eru úti í beði, ekki segja ráddi, heldur réði Þetta fullorðna fólk er svo skrýtið, það er alltaf að skamma mann, þó maður geri ekki neitt Það er alltaf að skamma mann Það má ekki skoða lítinn kall og ekki gefa ketti drullumall Ekki skjóta pabba með byssunni frá ömmu og ekki tína orma handa mömmu Það má ekki hjóla inn í búð og ekki gefa litla bróður snúð Ekki fara að hlæja þó einhver sé að detta, ekki gera hitt og ekki þetta Þetta fullorðna fólk er svo skrýtið, það er alltaf að skamma mann, þó maður geri ekki neitt Það er alltaf að skamma mann Lag og texti Sveinbjörn I Baldvinsson Viltu ekki frekar gefa hálsmen?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=