Ég og samfélagið

109 Oj! Ljótur! Það nennir þér enginn! Má setja hvad sem er á netid? Stutta svarið er nei. Allt sem fólk segir og gerir á netinu hefur áhrif, bæði á það sjálft og aðra Þess vegna er mikilvægt að hugsa áður en við birtum eitthvað á netinu Fólk gerir sér oft ekki grein fyrir hversu mörg skoða það sem sett er á netið Þegar grínið sem átti bara að vera fyrir vinina eða vinkonurnar er allt í einu búið að fá þúsund „like“ segir það allt sem segja þarf Munið að það sem sett er á netið hverfur aldrei! Þess vegna er mikilvægt að tjá sig skýrt þannig að það sé ekki hægt að misskilja eitt né neitt Ef fólk vandar sig er hægt að koma í veg fyrir óþarfa leiðindi síðar meir Hatursumræða er bönnuð með lögum

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=