Ég og framtíðin 1–3 | Kennsluleiðbeiningar | © Miðstöð menntunar og skólaþjónustu 2024 | 40356 |39| Margt er um að velja, bls. 24 Hæfniviðmið að nemendur geti: • gert grein fyrir því hvað og hverjir geta haft áhrif á náms- og starfsval og hvað það hafi að segja um eigið val • nýtt ýmis ráð til að takast á við breytingar og áskoranir sem tengjast námi og störfum Þessi æfing snýst um að bjóða fullorðna fólkinu til samtals um nám og námsval. Áður en æfingin er unnin í bekknum þurfa nemendur að taka stutt viðtal við einhvern fullorðinn. Viðtalið er síðan grunnurinn að verkefnavinnu í bekknum. Nemendur átta sig á að það eru margar mismunandi leiðir til að komast í gegnum nám og þátttöku í atvinnulífi. Sumir viðmælendur hafa ef til vill farið beina leið en aðrir hafa upplifað hlykkjóttari og flóknari leið í átt að þeim stað sem þeir eru á núna. Ekkert er réttara eða betra en annað. Nemendurnir læra líka að það eru margar mismunandi leiðir til að taka ákvörðun og að þeir sjálfir geti notað annan ákvarðanatökustíl en vinur eða bekkjarfélagi. Það er líka gott að vita að það gera ekki allir hlutina eins og fólk vill fara mismunandi leiðir. Ísjaki – mannkostir, bls. 26 Hæfniviðmið að nemendur geti: • lýst eigin styrkleikum og áhugasviðum og sett í samhengi við framtíðaráform sín Tilgangur þessa verkefnis er að nota „lýsingarorð Johari“ til að skoða mannkosti eða eiginleika nemenda. Í samvinnu við bekkjarfélaga tilgreina nemendur lýsingarorð sem þeim finnst lýsa sér og félaganum vel. Hvetjið nemendur til að hjálpa hver öðrum. Lýsingarorðin eru sett í hina ýmsu flokka en það er ekki nauðsynlegt að nota þá alla. Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður eldri?, bls. 28 Hæfniviðmið að nemendur geti: • lýst eigin styrkleikum og áhugasviðum og sett í samhengi við framtíðaráform sín • kannað möguleika, fundið eigin hugmyndum farveg og íhugað með öðrum afleiðingar náms- eða starfsvals Í stað þess að svara „veit ekki“ geta nemendur hjálpað hverjum öðrum við að finna góð svör við þessari spurningu. Svarið þarf ekki endilega að vera ákveðinn starfstitill eða starf, það gæti allt eins verið að svarið eigi við um starfssvið eða starfsumhverfi. Það getur líka snúist um annað en það sem er beinlínis tengt starfinu. Að byggja framtíð, bls. 29 Hæfniviðmið að nemendur geti: • kannað möguleika, fundið eigin hugmyndum farveg og íhugað með öðrum afleiðingar náms- eða starfsvals Við tölum oft um framtíðina sem eitthvað sem bíður okkar „þarna úti“, eitthvað sem við getum ferðast til með tímavél. Í raun og veru er framtíðin óhlutlæg á þann hátt að við getum búið eitthvað til upp á eigin spýtur. Í þessari æfingu vinna nemendur að því að taka ábyrgð á sinni eigin útgáfu af framtíðinni, vera leikarar í eigin lífi. Aðferðin snýst um að vinna að því að skapa eigin framtíð með þrepunum þremur. Framtíðin verður ekki búin til án þess að nemendur sjái fyrst fyrir sér hvert þeir vilja fara, hvað framtíðin á að fela í sér og hvernig þeir geta unnið að því að gera þetta mögulegt.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=