Ég og framtíðin

108 10. bekkur | 1. HLUTI 2 Sjálfstal í skólastofunni 1 Jákvætt eða neikvætt sjálfstal? Sjálfstal Sjálfstal köllum við samtalið sem við eigum innra með okkur, með neikvæðum og jákvæðum athugasemdum um okkur sjálf. Þetta samtal hefur mikil áhrif á það hvernig við mætum áskorunum. Jákvætt sjálfstal er lykilþáttur í að takast á við bæði meðbyr og mótlæti. Í þessari æfingu skoðum við og veltum þessu samtali fyrir okkur Hugsaðu um krefjandi aðstæður sem þú hefur lent í, þar sem sjálfstal kom við sögu. Skrifaðu niður hvað gerðist. Var sjálfstalið jákvætt eða neikvætt? Nefndu dæmi. Nefndu fimm atriði sem einkenna þig og vinnu þína í skólanum. Gerðir þú eitthvað til að breyta hugsunarhætti þínum? Hvað virkaði? Hvað hefðir þú sagt ef vinur þinn eða vinkona væri í þessum aðstæðum? Hefur eitthvað breyst varðandi það hvernig þú hlustar á og notar sjálfstalið, síðan í 9. bekk? Sjá bls. 74. a a c b b d Horfðu á Ted talk fyrirlestur á ensku um það hvernig sjálfstal hefur áhrif á okkur.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=