Ég heiti Grímar

7 Það brakar í gólfinu þegar ég rís á fætur. Um leið rek ég mig upp undir súðina svo það bylur í. Ég nudda auman kollinn og hlæ. Það er eins og ég muni ekki hvar ég byrja og enda. Ég róta í kassanum sem ég velti um koll. Bækurnar eru snjáðar en litríkar. Ég tek upp eina bók og reyni að ráða í textann.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=