Ég heiti Grímar

51 Ég er búin að fletta nafninu þínu upp í orðabók. Það þýðir: dulbúinn hermaður. Mér f innst það flott. Vonandi getur þú lesi ð bréf i ð. Það er mjög mikilvægt. Það er allt brjálað í húsinu. Nágrannarnir halda að við séum að skemma hluti. Þeir vilja banna okkur að búa hérna. Við getum ekki farið neitt annað því við eigum engan pening. Við gætum lent á götunni, segir mamma. Það er að koma vetur og þá væri ömurlegt að búa úti á götu. Litlu systur mínar myndu ekki lifa það af.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=