Ég heiti Grímar

45 kafli 15 Ég heiti Grímar Mér finnst ég hafa dottað þegar ég loks ranka við mér aftur. Ef ég sofna á ný veit ég ekki hvenær ég vakna aftur. Ég er þreyttur en staulast aftur að íbúðinni. Ég reyni að lesa á skiltið á hurðinni. Ég get ekki lesið þessi löngu nöfn en ég sé að öll enda þau á því sama: dóttir . Hér er enginn sonur. Af hverju sá ég ekki að þetta var stelpa klædd eins og strákur? Ég fer inn í íbúðina en þar er enginn. Í herbergi stelpunnar er sama óreiðan. Ég reyni að ráða í pappírana og skoða blað með löngum lista.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=