Ég heiti Grímar

44 Strákurinn fer að hátta sig og ég er að hugsa hvort það sé nokkur leið að láta skápinn detta yfir rúmið. Strákurinn háttar sig úr hverri spjör og snýr sér að mér. En það er þá sem mér bregður: strákurinn með hettuna er stuttklippt stelpa ! Ég er furðu lostinn. Mér verður svo mikið um að ég geng beint í gegnum vegginn án minnstu fyrirhafnar. Ég enda úti á stigagangi. Þar lyppast ég niður úti í skoti. Eitthvað furðulegt gerist með stafinn minn. Hann springur út eins og tjald. Þetta getur ekki boðað gott.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=