Ég heiti Grímar

41 kafli 14 Stelpa Ég bíð til næsta kvölds. En mér er nóg boðið. Ég verð að einbeita mér að því að ásækja afkvæmið . Uppgjörinu verður ekki frestað lengur. Ég finn kerti í glugga sem er of nærri gardínu. Margir fara óvarlega með eld … Í herbergi stráksins sest ég gáttaður í gluggakistuna og virði fyrir mér það sem ég sé. Í herberginu er allt á tjá og tundri. Bækur liggja út um allt, föt í hrúgum á gólfinu, alls kyns dót vellur út úr skápum og skúffum.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=