Ég heiti Grímar

40 Ég geng inn í íbúð númer fimm. Í forstofunni er umhorfs eins og draugur hafi leikið þar lausum hala. Töskur, föt og skór í óreiðu. Arkir af hvítum pappír þekja gólfið. Blómapottur hefur oltið á hliðina og gólfið er útatað í mold og bleytu. Ég skoða ummerkin í krók og kring. Ég pota í dótið með stafnum mínum. Er einhver að apa eftir mér? Nú bætast við moldug og klístruð fótspor. Þau eru ekki stór. Það eru fótsporin mín.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=