Ég heiti Grímar

27 Ég finn gamalt hatur brenna. Ég veit að þarna kemur sá sem ég hef beðið eftir. Afkomandi bóndans: afkvæmið. Það er mjóslegin vera sem þýtur fram hjá mér upp stigann án þess að staldra við. Hetta slútir fram yfir andlitið. Mér sýnist þetta vera strákur á aldur við mig. Ég elti hann að dyrunum á íbúð númer fimm. Ég heyri raddir og þekki róm konunnar með mjólkina. Ég doka við og ákveð að fara ekki inn. Ég ætla að bíða til morguns. Ég hef nægan tíma.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=