Ég heiti Grímar

21 – Við hýsum ekki flökkufólk, segir bóndinn og hrækir út í vindinn. – Hér er ekkert að fá. Haldið áfram yfir heiðina! Gefið ykkur fram við yfirvöld þar í sveit, skipar hann. Og svo lokast dyrnar. Á sumrin er leiðin yfir heiðina ekki löng. En þennan vetrardag æða trylltir vindar um dal og fjöll. Ísköld élin berja til jarðar hvern þann sem vogar sér út.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=