Ég heiti Grímar

16 Í eldhúsi sé ég konu og tvö börn. Konan er að gefa yngra barninu að borða úr skál. Eldra barnið er að drekka mjólk. Ég kyngi og hugsa um dásamlegt bragðið. Það er varla að ég muni það. Ég fékk sjaldan mjólk að drekka. Ég stari á konuna sem masar glaðlega við börnin. Hún hellir meiri mjólk í glasið. Ég hugsa langt aftur í tímann, um aðra konu með tvö börn. Og enga mjólk. Ég stari og hugsa og finn hvernig reiðin vex eins og svartur reykur sem verður að brjótast út.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=