Ég heiti Grímar
12 kafli 4 Brölt Ég hef ekki tíma til að skoða engilinn betur, því nú opnast hlerinn aftur. Maðurinn með gleraugun starir inn á loftið. Ég stend grafkyrr og glotti. En karlinn brosir ekki. Þá rek ég tána í rauða kúlu sem rúllar lítinn hring innan um glerbrotin. Það hefur áhrif! Karlinn skellir aftur hleranum og hraðar sér burt. Ég heyri hann tala háum rómi á hæðinni fyrir neðan. Svo heyri ég hurðir skellast.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=