Drekadansinn

Nýr strákur í skólanum Það er kominn nýr strákur í bekkinn hennar Tinnu. Hann heitir Xu og kemur alla leið frá Kína. – Xu hefur búið á Íslandi í tvö ár. Hann kann því svolítið í íslensku. Vonandi lærir hann enn meira í bekknum okkar, segir Elín kennari. Hún skrifar nafnið hans á töfluna og allir æfa sig í að segja það. Nafnið er borið fram Su. Elín sýnir krökkunum líka hvar Kína er á landakorti. Þetta er stórt land og fjarska langt í burtu. Tinna verður glöð þegar Elín biður Xu að fá sér sæti við hliðina á henni. 2

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=