Drekadansinn

20 Luktarhátíðin er hafin – Ég hef hlakkað til luktarhátíðarinnar í margar vikur, segir Xu. Það besta er nefnilega eftir því nú förum við í drekadans! Tinnu svelgist á matnum. – En spennandi! segir hún hrifin. Ég vona að það sé ekkert hættulegt. – Viljið þið ekki öll koma með? spyr mamma Xu. Hún lítur spyrjandi á foreldra Einars og Tinnu. – Auðvitað! svara þau þótt þau viti enn ekkert hvað drekadans er. Þau ljúka við matinn og drífa sig síðan ofan í bæ. Þar hefur fjöldi manns safnast saman. Þetta eru Kínverjar og íslenskir vinir þeirra. Hverjir voru að halda upp á luktarhátíðina í bænum?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=