Drekadansinn

Pabbi og mamma Xu eru samt bara í venjulegum fötum. Þau bjóða Einar og Tinnu hjartanlega velkomin. Í stofunni hafa ýmsar kræsingar verið lagðar á borð. – Er veisla? spyr Tinna forvitin. – Já, í dag er luktarhátíðin. Á miðnætti byrjar nýtt ár, segir Xu. – Það getur ekki verið. Það er komið fram í febrúar, segir Einar. – Í Kína byrja áramótin með nýju tungli í lok janúar eða febrúar, segir Xu. Ár músarinnar er liðið. Á miðnætti rennur ár nautsins upp. Þess vegna höldum við hátíð! Hvenær eru áramótin í Kína?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=