Drekadansinn

Einar hittir Xu – Halló, segir Einar við Xu. – Það er gott að þú skulir hafa komið heim með Tinnu. Við þurfum hjálp við að borða allar bollurnar sem við bökuðum. Þau setjast öll þrjú inn í eldhús og fá sér í gogginn. – Á morgun er sprengidagur, segir Einar við Xu. Þá eigum við að borða þangað til okkur líður eins og við séum að springa. – Úff, mér líður þannig núna, segir Xu og heldur um magann.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=