Arfurinn

87 Hann vissi alveg að hún var bara að sýna honum að það var hún sem réði. Hann skildi alveg að hún var bara að sýna honum að bíllinn var ómissandi fyrir leiðangurinn og þess vegna yrði hann að vera vinalegur við hana. Svo myndi hún stoppa og koma aftur. Örugglega bráðum. Bíllinn ók allt of hratt í burtu. Hún hægði ekkert á sér. Hannes beið átekta. Bíllinn hvarf úr augsýn. Það liðu fimm mínútur áður er hann skildi að Álfrún var í alvörunni farin og að hún ætlaði ekki að koma aftur.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=