Arfurinn

47 – Þú þarft að keyra mig á flugvöllinn. – Ertu að fara til Keflavíkur? En þú sagðir að við værum ekki að fara þangað! sagði Álfrún. Svo saup hún hveljur. Ætlarðu að strjúka úr landi ? – Ég var að segja þér að ég er ekki að strjúka! En ég þarf samt að komast til Keflavíkur, sagði Hannes og leit aftur um öxl. Svarti bíllinn nálgaðist húsið þeirra mömmu. Gætirðu kannski keyrt af stað núna? – Til Keflavíkur? spurði hún aftur. – Nei, á Snæfellsnes! – Snæfellsnes? – Álfrún, gerðu það, viltu bara keyra af stað! orgaði Hannes, hærra en hann hafði ætlað að gera. En það virkaði, Álfrún hrökk í kút og leit áhyggjufull á hann. Hún ræsti bílinn og brunaði út af bílastæðinu rétt í þann mund sem svarti bíllinn keyrði hægt fram hjá húsinu og tók stefnuna á bensínstöðina.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=