Arfurinn

18 Mamma þoldi ekki að fara í tjaldferðalög – og svo voru það líka yfirleitt fullorðnir sem ákváðu hvenær ætti að fara í ferðalög og hvert ætti að fara. Mamma hans myndi ekki taka því vel ef Hannes væri allt í einu búinn að skipuleggja sumarfríið þeirra út af einhverri dellu í Guðvarði. Nei, það gengi ekki. Ef hann ætlaði í alvöru að gera þetta – sem hann ætlaði ekki að gera – þá kæmi enginn til greina nema Álfrún. Og Álfrún Lovísa var sko síðasta manneskja á jarðríki sem Hannes ætlaði að koma nálægt. Sama hvaða vitleysa Guðvarður segði að væri áríðandi.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=