Allt um ástina - nemendaverkefni

40741 Allt um ástina – nemendaverkefni | © Menntamálastofnun og Ráðgjafar- og greiningarstöð 2023 246 Kæri sáli Ég fór að djamma um daginn með vinkonum mínum niður í bæ. Á einum staðnum bauð strákur mér uppá drykk, sem ég þáði. Við byrjuðum að spjalla og mér fannst hann mjög sætur og skemmtilegur. Við dönsuðum aðeins saman og kysstumst svo. Hann spurði mig hvort ég vildi fara heim með honum, ég var ekki alveg viss af því ég var bara að kynnast honum. Hann sagði að við þyrftum alls ekki að stunda kynlíf, gætum bara haldið áfram að kyssast og kúra. Ég fór heim með honum og þegar við vorum komin upp í rúm byrjaði hann að klæða mig úr fötunum, ég sagði ekki neitt en fannst það smá skrýtið af því við ætluðum ekki að stunda kynlíf. Síðan byrjaði hann að koma við píkuna á mér og brjóstin. Ég reyndi að ýta honum frá mér og segja nei en hann sagði mér bara að slaka á. Síðan setti hann typpið á sér inn í píkuna á mér. Ég gjörsamlega fraus. Þetta var ekki það sem ég vildi og mér líður svo illa. Hvað get ég gert?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=