Listin að lesa og skrifa 1b - Alli risi á lása

Notkun Áður en barnið les textann er æskilegt að það sé hvatt til að skoða myndirnar vel og velta fyrir sér sögunni út frá þeim. Þetta ættu kennari/foreldri og barn helst að gera saman. Neðst á blaðsíðunum eru spurningar sem styðjast má við. Miðað er við að barnið hafi ekki lært alla bókstafina og er textinn því afar einfaldur en myndunum er ætlað að dýpka hann og gæða söguna lífi. Þá gefst einnig tækifæri til að kynna orð sem verða á vegi barnsins og auðvelda því lesturinn. Á meðan lesið er Ef barnið er mjög hæglæst getur verið hvetjandi fyrir það að fullorðinn hefji lesturinn og lesi t.d. fyrstu blaðsíðuna, jafnvel aðra hverja blaðsíðu eða aðra hverja línu til að barnið gefist ekki upp og njóti þess að ljúka við að lesa bók. Eftir lestur textans er mikilvægt að ræða betur það sem kom fram, spyrja spurninga úr textanum og ganga úr skugga um lesskilning. Þá getur verið skemmtilegt að fara í orðleiki, finna tiltekin orð í bókinni, telja hvað þau koma oft fyrir, finna orð sem ríma, falleg orð, skrýtin orð, orð sem merkja það sama o.s.frv. Alli risi á lása Lestrarbók 1b ISBN 978-9979-0-2523-8 © Arnheiður Borg og Sigrún Löve © teikningar Böðvar Leós Ritstjórn: Sylvía Guðmundsdóttir 1. útgáfa 2013 önnur prentun 2017 þriðja prentun 2018 Menntamálastofnun Kópavogi Umbrot: Námsgagnastofnun Prentun: Litróf ehf. – Umhverfisvottuð prentsmiðja

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=