Að vefa utan vefstóls

18 AÐ VEFA UTAN VEFSTÓLS 2.c Íspinnafjör – Froskur STUTT LÝSING Verkefnið felur í sér að nemendur vefa á einfaldan hátt einskeftuvefnað í hring. Þeir velja sér fyrirmynd eða teikna hana sjálfir. HÆFNIVIÐMIÐ Sjá á bls. 62. TÍMALENGD Um það bil 4-6 x 40 mín, mismunandi eftir hverjum og einum nemenda og útfærslu kennara. GRUNNÞÆTTIR MENNTUNAR læsi ✔ sjálfbærni heilbrigði og velferð ✔ lýðræði og mannréttindi ✔ jafnrétti ✔ sköpun SAMÞÆTTING Hægt er að samþætta verkefnið við náttúrugreinar. Nemendur skoða froska, fræðast um þá og búa til sinn eiginn. Einnig er hægt að samþætta við íslensku og útbúa sögu um frosk. MARKMIÐ VERKEFNISINS ERU AÐ • vefa á einfaldan hátt einskeftuvefnað í hring með óhefðbundinni vefuppistöðu sem samanstendur af þremur ísspýtum sem eru límdar saman. Þar sem þær mynda slétta tölu krefst það þess að nemendur hoppi yfir tvær spýtur til þess að garnið krossist á milli spýtnanna og hylji ísspýturnar, • leyfa sköpunargáfu nemenda að ráða og leyfa þeim að velja sér fyrirmynd eða teikna og vinna á sjálfstæðan hátt út frá henni.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=