Á spani

Til kennara Tilgangur þessa bókaflokks er að vekja lestraráhuga nemenda og þjálfa þá í að lesa orð með samhljóðasamböndum. Við gerð bókarinnar Á spani eru sérstaklega valin orð með sp, spr, sj og sv. Flest orðin í textan­ um eru börnunum kunnug og er lögð áhersla á að myndefnið styðji vel við textann. Hér að neðan eru nokkrar ábendingar um notkun. Forspá/umræður. Nemendur og kennari skoða bókina og ræða efni hennar út frá titli, kaflaheitum og myndum. Lögð er áhersla á að nota orðin sem koma fyrir í textanum. Orðaforði. Orð sem barnið skilur e.t.v. ekki þarf að útskýra. Dæmi: á spani, sprækir, svæfill, spangóla, vespa, skammel, spauga, spölur, sproti. Góð æfing til auka að orðaforða er að finna samheiti og andheiti orða þar sem því verður við komið. Hljóðgreining. Kennari segir orð, barnið hlustar eftir tilteknu sam- hljóðasambandi. Hvar er það í orðinu? Æskilegt að nota fleiri orð en eru í textanum. Orðalestur . Skrifa má samhljóðasambandsorðin á lítil spjöld og æfa nemendur í að lesa þau stök. Lesturinn má auðvelda með því að búta orðin í lesbúta, dæmi: spro-ti . Sum börn þurfa einnig æfingu í að lesa önnur orð í textanum, sjá orðakassa á bls. 16. Þar eru tekin út orð með tvöföldum samhljóða, samsett orð og orð með samhljóðasamböndum inni í orðum. Hafa skal í huga að orð með samhljóðasambandi fremst og tvöföldum samhljóða inni í orði geta reynst byrjendum býsna erfið. Í sögunni koma fyrir nokkur orð með st og sk en þau samhljóðasam­ bönd eru æfð sérstaklega í sögunum Leynifélagið Skúmur og Læstur inni . Lestur. Sagan lesin. Vakin athygli á spurningunum neðst á hverri síðu sem eru ætlaðar til að skerpa athygli og lesskilning. Ritun. Nemandi finnur orð í sögunni sem byrja á sp-, spr-, sj- og sv-. Venjulega er nóg fyrir barnið að fást við eina opnu í senn. Orðin skrifar barnið í eigin bók og strikar t.d. undir samhljóðasambandið. Úrvinnsla. Í þessari sögu koma fyrir nokkur samsett orð. Tilvalið er að vekja athygli á þeim, finna þau og æfa barnið munnlega í að búa til samsett orð úr tveimur orðum eða jafnvel fleirum, dæmi: blóm – pottur, kerti – ljós, eldur – spýta – stokkur. Einnig má skrifa orðin í „orðabók” og myndskreyta. Hér hentar vel að bera saman lengd orða. Kennarinn segir tvö orð, langt og stutt, og barnið reynir að átta sig á hvort er lengra. Oft hjálpar að klappa orðin. Æskilegt er að sýna líka orðmynd­ irnar og bera þær saman. Á vef Menntamálastofnunar eru verkefnablöð með sögunni.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=