Á ferð um samfélagið

68 HUGTAK Fjölskyldan Fjölskyldur eru til í flestum sam- félögum heims. Fjölskyldan sér um að halda samfélaginu gangandi vegna þess að hún framleiðir nýja einstaklinga og í fjölskyldunni lærir þú leikreglur sam- félagsins. Þótt flestir ef ekki allir þekki fjöl- skylduna af eigin raun þá vefst það fyrir mörgum að skilgreina hvað hún er, því það eru til fjölmargar gerðir eða tegundir fjölskyldna um allan heim. Á að telja afa og ömmu með? Eða systkini sem hafa flutt að heiman og stofnað eigin fjölskyldu? Hvað með Emil frænda og Ísabellu frænku, eru þau hluti af fjölskyldunni? Á Vesturlöndum getur „fjölskylda“ merkt litla einingu sem býr í sama húsi og samanstendur af foreldrum og „tveimur“ börnum þeirra. Í Afríku getur sama hugtak átt við stóran hóp fólks sem dýrkar sömu forfeðurna. Allar fjölskyldur eiga þó eitt sameiginlegt en það er að fólk reiðir sig á stuðning annarra meðlima hennar. Ef sá stuðningur bregst er miklu erfiðara að takast á við tilveruna. Ef þú ert ekki viss um hverjir tilheyri fjölskyldu þinni skulum við byrja á að skilgreina hana. Fjölskyldan Fjölskylda er hugtak sem notað er um hóp einstaklinga sem er tengdur eða skyldur og býr saman að staðaldri. Fjölskyldumeðlimirnir eru oftast full- orðnir einstaklingar af báðum kynjum eða einstaklingur ásamt barni eða börnum og þeir fullorðnu bera ábyrgð á börnunum. Samkvæmt þessari skilgreiningu eru Emil frændi og Ísabella frænka ekki fjölskylda þín í eiginlegri merkingu af því að þau búa ekki undir sama þaki og þú. Þegar við búum til faglega skil- greiningu verðum við að gæta vel að því að hún rúmi allar þekktar fjöl- skyldugerðir á jörðinni en ekki bara þá sem algengust er hér á landi. Tveggja kynslóða fjölskyldan Hvernig er venjuleg íslensk fjölskylda? Flestar fjölskyldur hér eru samsettar úr tveimur kynslóðum – foreldrum og börnum. Sú fjölskylda sem við höfum hér á landi kallast kjarnafjölskylda en algengasta gerð hennar er mamma, pabbi og börn. Aðrar gerðir kjarna- fjölskyldunnar eru til dæmis einstæðir Árið 2015 voru 1.137 feður skráðir einstæðir með börn en 11.491 móðir (af um 103.000 kjarnafjölskyldum)

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=