Á ferð um samfélagið

66 5. Fjölskyldan Allir vita hvað fjölskylda er – en hvernig myndir þú skilgreina hugtakið? Inniheldur fjölskyldan bara pabba, mömmur og börn eða eru Emil frændi og Ísabella frænka líka hluti af fjölskyldunni? Í þessum kafla ætlum við að fjalla um mismunandi gerðir fjölskyldna eftir menningarheimum og skoða hvaða hlutverk hún hefur. Leikkonan Rosalind Russel heldur því fram að „allt of margt fólk leggi út á opið haf hjónabandsins áður en það hefur lært einföldustu sundtökin“. Í framhaldi af því munum við skoða af hverju um 40% allra hjónabanda hér á landi enda með skilnaði.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=