Á ferð um samfélagið

14 Nokkar staðreyndir um barnaþrælkun UNICEF – Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna vinnur að því um allan heim að afnema barna- þrælkun. Verndun barna er eitt af fimm for- gangsatriðum samtakanna en með því er átt við að vernda börn gegn vinnu, kynlífsþrælkun, stríði, ofbeldi; að frelsa börn úr hermennsku og sinna þeim sem orðið hafa fyrir sálrænum áföllum. Samtökin leggja mikla áherslu á að ná til þeirra barna sem hafa það einna verst í heiminum. Samkvæmt nýjustu tölum UNICEF eru um 246 milljónir barna nú í barnaþrælkun. Þessi börn hafa verið svipt frelsinu og búið er að taka af þeim grundvallar mannréttindi sem öll börn eiga að hafa eins og t.d. að ganga í skóla. Barnaþrælkun er útbreidd, sérstaklega í þróunarlöndum. Hér er mynd af Ayesha, 8 ára gamalli stúlku sem stritar allan daginn í múrsteinaverksmiðju í Bangladesh. Hvað þýðir barnaþrælkun? Barnaþrælkun þýðir að börn (undir 18 ára aldri) eru látin vinna líkamlega erfiða vinnu semógnar lífi þeirra og heilsu. Eitt af hverjum tólf börnum í heiminum, eða 180 milljónir barna, eru látin vinna vinnu sem er mjög skaðleg heilsu þeirra. Við hvað vinna börnin? Sum barnanna eru látin vinna í verksmiðjum, við þjónustustörf, verslunarstörf og við ræst- ingar. Langflest þeirra vinna hins vegar við land- búnaðarstörf. Mörg af þessum börnum og þá aðallega stúlkur, eru neyddar til að stunda vændi. Af hverju eru börn látin vinna? Í sumum löndum vantar lög eða aðrar varnir sem gætu hindrað að börn lendi í þrælkun. Fátækt leiðir líka oft til að börn verða að vinna til að létta undir með fjölskyldunni. Börnin eru látin vinna inni á heimilinu eða við búskap. Þau eru þannig ókeypis vinnuafl. Vinna barnanna kemur í veg fyrir að þau geti gengið í skóla og þar með festast þau í fátækragildru. Lítil menntun getur verið bæði orsök og afleiðing þess að börn fari að vinna. Loks má nefna að sum börn verða að vinna vegna skyndilegra áfalla eða breytinga í fjölskyldunni. Þetta á til dæmis við í fátækari ríkjum heims ef foreldrar barnanna veikjast eða deyja. Þá neyðast börnin til að vinna fyrir launum eða mat. UNICEF.IS

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=