Á ferð og flugi í umferðinni

20 Næst þegar þú ferð í ferðalag eitthvað um landið (eða jafn- vel í útlöndum) skaltu athuga hvort þú þekkir ekki örugg- lega meirihlutann af þeim umferðarmerkjum sem þú sérð. Eftir að hafa farið í þennan leik ættirðu alla vega að muna eftir mörgum! Það getur til dæmis komið sér vel að koma auga á merki um að veitingastaður sé framundan og vekja athygli bílstjórans á því … Þetta er leikur þar sem skipta þarf bekknum í nokkra hópa með þremur til fjórum krökkum í hverjum hópi. Leikurinn gengur út á það að leika hin ýmsu umferðarmerki, ýmist með kyrri uppstillingu eins og ljósmynd eða með lát- bragði. Ekki má gefa frá sér nein hljóð. Hvernig leikur maður merki sem gefur til kynna að hraðahindrun sé framundan? Hvað með að leika merki sem segir að akstur dráttarvéla sé bannaður? Hvernig er hægt að leika merki sem vísar á næsta salerni? Þetta getur orðið mjög fyndið.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=