Á ferð og flugi í umferðinni

9 Ferðast þú einhvern tíma með strætó? Margir nota strætó daglega til að komast til og frá skóla eða vinnu eða í tómstundir eða til að fara í heimsóknir til vina og ættingja. Það hefur marga kosti í för með sér að ferðast með strætó. Það er ódýr og öruggur ferðamáti og auk þess frekar umhverfisvænt. Ef fleiri tækju strætó í stað þess að aka um á einkabílum myndi umferðarþungi, eldsneytisnotkun og mengun minnka. En til þess að geta tekið strætó er nauðsynlegt að vera fær um að lesa og skilja tímaáætlanir. Á biðstöðvum strætó eru leiðakort sem hægt er að fara eftir en einnig má skoða tímaáætlanir og kort á Netinu áður en lagt er af stað með því að slá inn www.straeto.is. Kannt þú að lesa úr upplýsingum leiðakorta og tímaáætlana strætó?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=