Á ferð og flugi í umferðinni

8 Hér fyrir neðan skaltu teikna upp kort af skólanum þínum og næsta nágrenni hans, þ.e.a.s. þær götur sem liggja að honum og eru nálægar. Hvar eru gangbrautir? Hvar eru gangbrautarljós? Umferðarljós? Stoppmerki? Biðskylda? Undirgöng? Göngubrú? Hringtorg? Strætóstoppistöð? Er gangbrautarvörður stað- settur nálægt skólanum á mestu umferðar- tímum? Teiknaðu inn á kortið það sem á við um þinn skóla. Þú þarft kannski að fara út til að kanna umhverfið í kringum skólann. Er eitthvað sem þér finnst að þyrfti að bæta? Er auðvelt og öruggt fyrir krakkana í hverfinu eða byggðarlaginu að komast að skólanum sínum? Veltu þessum spurningum fyrir þér á meðan þú teiknar. Ekki sakar að vinna verkefnið í sam- vinnu við einhvern í bekknum og spjalla um það í leiðinni. Þetta er kort af nágrenni _________________________________ skóla

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=