Trunt, trunt og tröllin - rafbók

84 Helgisögur 32. Sálin hans Jóns míns S ö g u g l u g g i E inu sinni bjuggu saman karl og kerling. Var karlinn heldur ódæll og illa þokkaður og þar að auki latur og ónýtur á heimili sínu. Líkaði kerl- ingu hans það mjög illa og ámælti hún honum oft- lega og kvað hann eigi duga til annars en sóa því út er hún drægi að. Sjálf var hún síúðrandi og hafði alla króka í frammi til þess að afla þess er þurfti og kunni jafnan að koma ár sinni fyrir borð við hvern sem um var að eiga. En þótt þeim kæmi eigi vel saman í sumu, unni þó kerling karli sínum mikið og lét hann ekkert skorta. Fór nú svo fram lengi. En eitt sinn tók karl sótt og var þungt haldinn. Kerling vakti yfir honum og er draga tók af karli, kemur henni til hugar að eigi muni hann vel búinn undir dauða sinn og vafamál hvort hann nái inn- göngu í himnaríki. Hún hugsar því með sér að það sé ráðlegast hún reyni sjálf að koma sál bónda síns á framfæri. Hún tók þá skjóðu og hélt henni fyrir vitin á karli og er hann gefur upp öndina fer hún í skjóðuna en kerling bindur þegar fyrir. Síðan fer hún til himna og hefur skjóðuna í svuntu sinni, kemur að hliðum himnaríkis og drepur á dyr . Við gullna hliðið Þá kom Sankti Pétur út og spyr, hvað erindi hennar sé. – Sælir nú, segir kerling, ég kom hingað með sálina hans Jóns míns. Þér hafið líklega heyrt hans getið og ætla ég nú að biðja yður að koma honum hérna inn. – Jájá, segir Pétur, en því er verr að það get ég ekki, reyndar hef ég heyrt getið um hann Jón þinn en aldrei að góðu. Þá mælti kerling: – Það hélt ég ekki, Sankti Pétur, að þú værir svona harðbrjóstaður og búinn ertu nú að gleyma hvernig fór fyrir þér forðum þegar þú afneitaðir meistara þínum. Pétur fór við það inn og læsti en kerling stóð stynjandi úti fyrir. En er lítil stund er liðin drepur hún aftur á dyrnar

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=