Trunt, trunt og tröllin - rafbók

6 1. Lestu vel yfir alla söguna. 2. Skoðaðu vel útskýringar á feitletruðum orðum. 3. Ef þú skilur ekki öll orðin skaltu leita skýringa, t.d. í orðabókum eða á netinu. 4. Reyndu að draga saman aðalatriði sögunnar. Um hvað fjallar hún, hvert er aðalefni hennar? Þetta getur þú gert í huganum. 5. Prófaðu að segja einhverjum frá sögunni. Endursegðu hana með þínum orðum. Notaðu Sögugluggann, sem fylgir hverri sögu, til að hjálpa þér að muna efni sögunnar. 6. Skoðaðu spurningarnar í lok hverrar sögu. Skráðu svörin í stílabók og ræddu þau við félaga þína. 7. Reyndu að búa til fleiri spurningar úr efni sögunnar. 8. Kynntu þér fleiri þjóðsögur , t.d. í þjóðsagna- söfnum eða á netinu. Ævintýri eru frásagnir sem sagðar eru fólki til skemmtunar. Þau flakka milli landa, taka á sig ýmsar myndir og búninga eftir heimkynnum. Í ævintýrum koma gjarnan fyrir kóngur, drottning, prins, prinsessa, bóndi, bóndakona, bóndasonur og bóndadóttir. Í þeim er oft norn eða galdrakarl. Þau gerast oft í höll eða kastala, stundum líka á bónda- bæ. Ævintýri eru oftast full af furðum, kynjaverum, álögum og töfragripum. Þau fjalla yfirleitt um bar- áttu góðs og ills og eru full af andstæðum: góður/ illur, ríkur/fátækur. Sögurnar enda oftast vel, a.m.k. fyrir aðalpersónurnar sem eru alltaf góðar. Í ævin­ týrum er gjarnan mikið um endurtekningar og þau hefjast oft á orðunum: Einu sinni var ... og enda á orðunum: Köttur úti í mýri ... Ævintýri og þjóðsögur eiga margt sameiginlegt og stundum er erfitt að greina á milli. Ævintýri gerast venjulega í ímynduðum heimi, eru óbundin stað og tíma, geyma oft galdra eða töfra, langar frá- sagnir sem ekki er ætlast til að menn trúi. Þjóðsög- ur á hinn bóginn lýsa oft raunverulegri atburðum á stuttan og einfaldan hátt og hafa varðveist í munn- mælum. Íslenskar þjóðsögur fjalla gjarnan um sam- skipti fólks við tröll og forynjur, útilegumenn, álfa og óblíð náttúruöflin. Ingólfur Steinsson Gott að hafa í huga við lestur þjóðsagna og ævintýra Um ævintýri

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=