Trunt, trunt og tröllin - rafbók

76 Tröll 29. Trunt, trunt og tröllin í fjöllunum S ö g u g l u g g i E inu sinni voru tveir menn á grasafjalli . Eina nótt lágu þeir báðir í tjaldi saman. Svaf annar en hinn vakti. Sá þá hinn er vakti að sá sem svaf skreið út. Hann fór á eftir og fylgdi honum en gat naumast hlaupið svo að ekki drægi sundur með þeim . Maðurinn stefndi upp til jökla. Hinn sá þá hvar skessa mikil sat uppi á jökulgnípu einni. Hafði hún það atferli að hún rétti hendurnar fram á víxl og dró þær svo upp að brjóstinu og var hún með þessu að heilla manninn til sín. Maðurinn hljóp beint í fang henni og hljóp hún þá burt með hann. Ári síðar var fólk úr sveit hans á grasafjalli á sama stað. Kom hann þá til þess og var fálátur en ábúðarmikill svo varla fékkst orð af honum. Fólkið spurði hann á hvern hann tryði og sagðist hann þá trúa á guð. Á öðru ári kom hann aftur til sama grasafólks. Var hann þá svo tröllslegur að því stóð ótti af honum . Þó var hann spurður á hvern hann tryði en hann svaraði því engu. Í þetta sinn dvaldi hann skemur hjá fólkinu en fyrr. Á þriðja ári kom hann enn til fólksins. Var hann þá orðinn hið mesta tröll og illilegur mjög. Einhver áræddi þó að spyrja hann á hvern hann tryði en hann sagðist trúa á „trunt, trunt og tröllin í fjöll- unum“ og hvarf síðan. Eftir þetta sást hann aldrei enda þorðu menn ekki að vera til grasa á þessum stað nokkur ár eftir. Þjóðsagnasafnið Rauðskinna

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=