Trunt, trunt og tröllin - rafbók

50 Galdrar 18. Kálfur og kölski S ö g u g l u g g i K álfur Einarsson hét prestur, hann var á Fell- um í Sléttuhlíð. Kálfur lærði í Svartaskóla og eru margar frásagnir til um viturleik hans og kunn- áttu og hvernig hann lét kölska þjóna sér til hvers sem hann vildi. Var það í kaupmála þeirra prests og kölska að kölski ynni fyrir prest allt sem hann legði fyrir hann en fengi Kálf að síðustu fyrir. Stóð svo allan aldur Kálfs. Þegar Kálfur var gamall mjög tók hann sótt allþunga. En þegar hann kenndi sín að sú sótt mundi helsótt vera bað hann að nautkálfur einn væri látinn undir rúm sitt þar sem hann lá. Ekki sást að prestur bæri hræðslu fyrir dauða sínum. Þegar prestur sýndist langt leiddur kom kölski til hans og kvaðst nú kominn þegar til að sækja hann eins og skilmálar þeirra væru. Prestur brást ókunn- uglega við og byrsti sig móti kölska. Tók kölski þá upp handskrift prests með blóði ritaða og bað hann við kannast. Prestur kvaðst svo gjöra mundi, leit á og mælti: – Þar stendur ekki Kálfur Einarsson en hér er nú kálfurinn sem heitinn er – og kippti kálfinum fram undan rúmi sínu. Sneyptist þá kölski og hvarf frá honum. Þjóðsögur Jóns Árnasonar Að lestri loknum 1. Finndu Sléttuhlíð á landakortinu. 2. Segðu frá því hvernig Kálfur lék á kölska. Skrifaðu frásögnina niður. 3. Hvers vegna óttaðist Kálfur ekki dauða sinn? kenndi sín : fann helsótt : sótt er mundi draga hann til dauða sneypast : snauta, skammast sín

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=