Trunt, trunt og tröllin - rafbók

48 Galdrar 16. Kölski er í fjósi S ö g u g l u g g i E inu sinni vantaði Sæmund fróða fjósamann. Tók hann þá kölska og lét hann vera í fjós- inu hjá sér. Fór það allt vel og leið svo fram á út- mánuði að kölski gerði verk sitt með öllum sóma. En á meðan séra Sæmundur var í stólnum á páska- daginn bar kölski alla mykjuna í haug fyrir framan kirkjudyrnar. Svo þegar prestur ætlaði út eftir messuna þá komst hann ekki. Sér hann þá hvað um er að vera, stefnir kölska til sín og lætur hann nauðugan vilj- ugan bera burtu aftur alla mykjuna frá kirkjudyr- unum og á sinn stað. Gekk séra Sæmundur svo fast að honum að hann lét hann seinast sleikja upp leif- arnar með tungunni. Sleikti þá kölski svo fast að það kom laut í helluna fyrir framan kirkjudyrnar. Þessi hella er enn í dag í Odda og nú ekki nema fjórðungur hennar. Liggur hún nú fyrir framan bæjardyrnar og sér enn í hana lautina. Þjóðsögur Jóns Árnasonar útmánuðir : tveir til þrír seinustu mánuðir vetrar, einkum góa og einmánuður nauðugan viljugan : þó hann vilji það ekki laut : dæld, lægð Að lestri loknum 1. Sæmundur fróði bjó í Odda á Rangárvöllum. Finndu þennan kirkjustað á landakortinu. 2. Í sögunni sést að Sæmundur hafði gott tak á kölska. Hvað bendir helst til þess? 25–30 orð.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=