Trunt, trunt og tröllin - rafbók

41 13. Konan sem fór í Svartaskóla S ö g u g l u g g i Þ að voru einu sinni hjón á bæ. Þess er ekki get- ið að þau hefðu fólk nema einn vinnumann. Þegar fram liðu stundir fór konan að taka það upp að sofa öllum dögum. Þetta þótti þeim bónda og vinnumanni undarlegt því þeir vissu nú ekki annað en að hún svæfi á nóttunni líka. Nú hugsaði vinnu- maður með sér að hann skyldi reyna að vaka kom- andi nótt og vita þá hvort hún svæfi. Um kvöldið hátta nú allir eins og vant er en vinnumaður sofnar ekki. Hann snýr sér fram og gætir vel að konunni. Þegar hún heldur að þeir séu sofnaðir rís hún upp aftur og klæðir sig, tekur síðan glas með einhverju í og dreypir á bónda og fer svo fram. Vinnumaður rís upp og læðist á eftir konunni. Þegar hún kemur fram í bæjardyrnar þá tekur hún þar svarta vettlinga og lætur upp á sig, gengur svo út á hlaðið, baðar upp höndunum og segir: – Upp og fram en hvergi niður, og þá strax hefst hún á loft í krafti þessara orða. – Upp og fram en hvergi niður, segir vinnumað- ur og með það fer hann upp líka. Svo líða þau yfir land og sjó þangað til þau koma á eitt landspláss. Eftir það gengu þau stundarkorn þar til þau komu að dálitlu húsi. Þar gekk konan inn og vinnumaður á eftir. Síðan settist hún niður við borð sem þar var. Vinnumaður settist þar líka niður utar við. Á borðinu logaði dálítil ljóstíra . Nú leið ekki langur tími þangað til að grá loppa kemur upp á borðið með steinspjöld og stíli . Þau taka við sínu spjaldinu hvort eins og hinir fleiri sem þar sátu allt í kring við borðið. Nú fóru allir að klóra eitthvað hver á sitt spjald en vinnumaður skrifaði nafn Jesú á spjaldið sitt. Svartiskóli : skóli í Frakklandi á miðöldum. Á seinni tímum var kölski talinn hafa verið þar skólastjóri dreypa : láta drjúpa á, skvetta á ljóstíra : dálítið ljós loppa : loðin, stór hönd (m.a. á trölli eða draug), krumla stíli, af stíll : ritfæri (úr leirblöndu) á stærð við blýant, notað til að skrifa á töflu með

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=