Trunt, trunt og tröllin - rafbók

28 Draugar S ö g u g l u g g i 9. Móðir mín í kví, kví E inu sinni var vinnukona á bæ. Hún hafði orðið þunguð , alið barn og borið út, sem ekki var mjög ótítt á landi hér, meðan harðar skriftir , sektir eða líflát voru lögð við slíkum brotum. Eftir það bar svo til eitthvert sinn að halda átti gleði þá er viki- vaki nefndist og alltíðir voru hér áður á landi og var þessari hinni sömu stúlku boðið til vikivakans. En af því hún var ekki svo fjölskrúðug að hún ætti skartföt er sambyði slíkum skemmtifundi sem viki- vakar voru á fyrri dögum, en var kona glysgjörn , lá allilla á henni að hún yrði þess vegna að sitja heima og verða af gleðinni. Einu sinni á málum meðan gleðin stóð til var griðkona þessi að mjólka ær í kvíum með öðrum kvenmanni. Var hún þá að fárast um það við hina mjaltakonuna að sig vantaði föt að vera í á vikivak- anum. En í því hún sleppir orðinu heyra þær þessa vísu kveðna undir kvíaveggnum: Móðir mín í kví, kví, kvíddu ekki því, því. Ég skal ljá þér duluna mína að dansa í og dansa í. Griðkona sú sem borið hafði út barn sitt þóttist þekkja hér skeyti sitt enda brá henni svo við vísuna að hún varð vitstola alla ævi síðan. Þjóðsögur Jóns Árnasonar Að lestri loknum 1. Hvernig skyldi konunni hafa liðið eftir að hún hafði borið barn sitt út og skilið það eftir í óbyggðum? 2. Er eitthvað í þessari litlu sögu sem útskýrir af hverju hún bar barnið út? 3. Kynntu þér útburð barna á fyrstu öldum Íslands- byggðar. Leitaðu í sagnfræðibókum, á netinu. Hvað refsingar voru við slíku? Skráðu helstu niðurstöður þínar.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=