Trunt, trunt og tröllin - rafbók

10 Álfar og huldufólk Þ að var á bæ einum um sumar að fólk allt var á engjum nema húsfreyja. Hún var heima og gætti bæjar með syni sínum á þriðja eða fjórða ár- inu. Sveinn þessi hafði vaxið og vel dafnað til þess tíma, altalandi var hann orðinn, skýr og efnisbarn eitthvert hið mesta. En með því konan átti um ýmis bæjarstörf að annast auk sveinsins varð hún að víkja sér frá honum litla hríð. Fór hún út í læk er var skammt frá bænum að þvo mjólkurtrogin . Skildi hún barnið eftir á meðan í bæjardyrunum og segir ekki af því fyrr en konan kom aftur eftir drukk- langa stund. Þegar hún yrðir á það hrín það og æpir illilegar og ámáttlegar en hún átti von á því áður var barnið mesta spektar barn, þýðlynt og þægt. En nú fær hún ekki af því nema óhljóð ein og illhrinur. Líður svo nokkuð hér frá að barnið mælir ekki orð frá munni en var ákaflega keipótt og rellið svo konan kunni ekkert lag á þessum háttaskiptum . Það vex og ekki og lætur fíflslega mjög. Konan varð mjög angruð af þessu og tekur það ráð að hún fer að hitta grannkonu sína er þótti vera hyggin og marg- fróð og segir henni frá hörmum þeim sem sig hafi hent. Konan innir hana grannt eftir hvað langt sé síðan barnið hafi tekið þessa fásinnu og hvernig hún ætli það hafi atvikast. Móðir sveinsins segir henni allt af létta eins og gengið hafði. Þegar grannkonan hin fróða hafði heyrt alla málavöxtu , segir hún: – Heldurðu ekki, góðin mín, að sveinninn sé umskiptingur ? Því það er ætlun mín að um hann hafi skipt meðan þú gekkst frá honum í bæjardyr- unum. – Ég veit ekki, segir hún, eða geturðu ekki kennt mér ráð til að komast eftir því? – Það mun ég geta, segir konan. Skaltu einhvern tíma skilja barnið eftir eitt saman og láta einhverja nýlundu bera fyrir það og mun það þá eitthvað mæla er það sér engan í kring um sig. En þú skalt hlera til og vita hvað því verður að orði. Þyki þér þá orðtök sveinsins undarleg og ískyggileg skaltu strýkja hann vægðarlaust uns eitthvað skipast um. Að svo mæltu skildu þær talið og þakkaði móðir sveinsins grannkonu sinni heilræðin og fór heim síðan. 2. Átján barna faðir í álfheimum S ö g u g l u g g i

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=