Trunt, trunt og tröllin - rafbók

110 Úr sjó og vötnum 42. Jakob á Jörfa og vermennirnir S ö g u g l u g g i E inn tíma bjó sá bóndi á Jörfa í Haukadal er Jakob hét. Hann var Eiríksson og faðir þeirra sýslumanna Jóns á Espihóli í Eyjafjarðarsýslu og Halldórs er hafði Strandasýslu. Hann var góður bóndi og vel fjáreigandi . Einn harðindavetur fóru tveir menn að norðan til sjóróðra vestur á land. Þeir komu að Jörfa og föl- uðu mat til kaups af bónda. Hann kvaðst ei hafa mat til sölu en gekk þó inn í bæinn og kom út aftur að stundu liðinni með síðu eina mikla og feita og þótti þeim sem hún mundi vera af nauti. Hann fékk þeim síðuna og vildu þeir þegar borga en hann kvað það vel mega bíða til þess þeir kæmu aftur að vestan. Þeir fóru síðan leið sína. Umvorið fórumenn þessir norður aftur og komu þá enn að Jörfa. Jakob stóð úti þá er þeir komu, og heilsuðu þeir honum. Hann tók vel kveðju þeirra og mælti: – Guði sé lof að ég sé ykkur báða lifandi. Annar þeirra svaraði: – Við hverju þótti þér hætt? Mér finnst fátt hafa á bjátað hjá okkur í vetur. Bóndi mælti: – Síða sú er ég fékk ykkur í vetur rak hér upp úr Haukadalsvatni eftir að öllum ís hafði flett af því í einu vetfangi. Er það ætlan manna að síða þessi muni hafa verið af nykur eða vatnahesti. Þá tók annar maðurinn til orða og mælti: – Guð hjálpi mér og varðveiti mig! Og datt hann í sama bili dauður niður. Hinn maðurinn lét sér hvergi bilt við verða og mælti: – Mig gildir einu hver fjandinn það hefur verið fyrst mér varð gott af því! Enda er þess ei getið að honum yrði meint við. En Jakob iðraðist þess mjög að hann sagði þeim hvernig á síðunni hefði staðið. Þjóðsögur Jóns Árnasonar vel fjáreigandi : átti margar kindur á bjátað : e-ð bjátar á, kemur babb í bátinn, e-ð er í veginum verða bilt við : láta sér bregða mig gildir einu : það skiptir ekki máli Að lestri loknum 1. Hvers vegna óttaðist Jakob bóndi um vermennina? 2. Hvers vegna hélt hann að um nykur hefði verið að ræða? 3. Af hverju iðraðist Jakob? 4. Hefur þú gert eitthvað sem þú sást eftir?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=