Trunt, trunt og tröllin - rafbók

104 Úr sjó og vötnum 39. Selshamurinn S ö g u g l u g g i E inu sinni var maður nokkur austur í Mýrdal sem gekk hjá klettum við sjó fram að morgni dags fyrir fótaferð . Hann kom að hellisdyrum ein- um, heyrði hann glaum og danslæti inn í hellinum en sá mjög marga selshami fyrir utan. Hann tók einn selshaminn með sér, bar hann heim og læsti hann ofan í kistu. Um daginn nokkru seinna kom hann aftur að hellisdyrunum. Sat þar þá ungleg kona og lagleg, var hún allsber og grét mjög. Þetta var selurinn sem átti haminn er maðurinn tók. Maðurinn lét stúlkuna fá föt, huggaði hana og tók hana heim með sér. Var hún honum fylgisöm en felldi skap sitt miður við aðra . Oft sat hún samt og horfði út á sjóinn. Eftir nokkurn tíma fékk maður- inn hennar og fór vel á með þeim og varð barna auðið. Haminn geymdi bóndi alltaf læstan niður í kistu og hafði lykilinn á sér hvert sem hann fór. Sjö börn í sjó og sjö börn á landi Eftir mörg ár reri hann eitt sinn og gleymdi lykl- inum heima undir koddabrún sinni. Aðrir segja að bóndi hafi farið með heimamönnum sínum til jóla- tíða en kona hans hafi verið lasin og ekki getað farið með honum. Hafi honum gleymst að taka lykilinn úr vasanum á hversdagsfötum sínum þegar hann hafði fataskipti. En þegar hann kom heim aftur var kistan opin, konan og hamurinn horfin. Hafði hún tekið lykilinn og forvitnast í kistuna og fundið þar haminn. Gat hún þá ekki staðist freistinguna, kvaddi börn sín, fór í haminn og steyptist í sjóinn. Áður en konan steypti sér í sjóinn er sagt hún hafi mælt þetta fyrir munni sér: Mér er um og ó, ég á sjö börn í sjó og sjö börn á landi. Sagt er, að manninum féllist mjög um þetta. Þegar hann reri síðan til fiskjar, var selur oft að sveima í kringum skip hans og var eins og tár rynnu af augum hans. Mjög var hann aflasæll upp frá þessu og ýmis höpp bar upp á fjörur hans. Oft sáu menn það að þegar börn þeirra hjóna gengu með sjávar-

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=