Trunt, trunt og tröllin - rafbók

8 Álfar og huldufólk Í túninu á Hörgslandi á Síðu er hóll einn sem kallaður er Álfahóll og var það forn trú að ekki mætti slá hólinn því ef það væri gjört þá kæmi veður svo mikið að skaði yrði að og hefði því hóllinn ekki verið sleginn í manna minnum. Jón kaupamaður hafði litla trú á slíku. Og einn morgun þegar sláttu- mennirnir voru út komnir og voru að slá í kringum hólinn var veður heiðríkt og stillilogn. Þá talar Jón kaupamaður um að það mundi lítið gera til þó hann slæði nokkuð upp í hólinn því honum þótti hann grasmikill. Vinnumennirnir vildu það ekki en hús- bóndinn var ekki út kominn en svo fór að Jón réði og sló nokkuð upp í hólinn. Síðan settust þeir niður hjá hólnum og fóru að brýna og var þá logn en á meðan þeir eru að brýna fer að hvessa í einu kasti. Hey var mikið úti bæði flatt og í sæti og hvessir hann nú svo snögglega að heyið fer óðum að fjúka. Í þessu bili kemur hús- bóndinn til þeirra og fer að tala um við þá að heyið muni ætla að fara allt út í veðrið en vinnumenn- irnir segja að það sé von til því Jón kaupamaður hafi slegið upp í hólinn þó þeir hafi varað hann við að gera það. Jón kaupamaður situr agndofa og fer að hugsa með sér að þetta sé þó eitthvað óskiljanlegt og víst muni heyskaðinn allur sér verða kenndur. Eftir litla þögn stendur hann upp og tekur orf sitt og segir hátt svo allir heyra að ef nokkur sú vera sé í hólnum eða hér nærri sem orsakað hefði þennan mikla storm þá sé hún eins máttug til að lygna aftur og ef hún ekki geri það þá skuli hann nú þegar slá allan hólinn og berja hann utan eins og hann geti, hvað sem á eftir komi og er illur í skapi og býr sig þegar til að fara að slá hólinn. En að þessum orðum töluðum fer heldur að draga úr veðrinu og bráðlygnir svo á skammri stundu og varð enginn heyskaði og var logn og heiðríkja eftir um daginn. Þjóðsögur Jóns Árnasonar, örlítið stytt 1. Álfar feykja heyi Sögug l ugg i

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=