Markviss málörvun

164 6S Kóngulóarvefurinn III Leiðbeiningar Garnhnykli er kastað á milli kennara og barna þannig að myndaður er vefur á meðan verið er að leika sér með orðin. Halda þarf í garnið með annarri hendi og kasta hnyklinum með hinni. Börnin sitja í hring. Kennarinn hljóðar orð. Börnin endurtaka í kór. Kennarinn kastar garnhnykli til barns og það giskar á orðið. Leikurinn heldur áfram þangað til búinn hefur verið til kóngulóarvefur. Hægt er að lyfta vefnum hátt upp. Hjálpargögn Stór hnykill úr grófu garni. Dæmi um leik Kennarinn: Hljóðar orð, til dæmis: V... a... s... i... Börnin: Endurtaka í kór: V... a... s... i... Kennarinn: Kastar garnhnykli til eins barnsins (munið að halda fast í garnið) og segir: V... a... s... i... Barnið: Það er vasi. Kastar hnyklinum til annars barns. Kennarinn: Hljóðar nýtt orð. 6S

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=